Um Dalbúa

Super User

Super User

Styrktarmót GD í samstarfi við Símann

Siminn-transStyrktarmót GD í samstarfi við Símann - Chapman fyrirkomulag

Stórskemmtilegt mót með glæsilegum verðlaunum í boði Símans.

Leikið verður með svokölluðu Chapman fyrirkomulagi en fyrirkomulagið var fundið upp af áhugamanninum Dick Chapman. Leikið er þannig að tveir leikmenn eru saman í liði.

Báðir leikmenn A og B slá upphafshögg. Að loknu því slær leikmaður A bolta leikmanns B og öfugt. Eftir þau högg koma liðin sér saman um hvaða bolta skal leika. Velji liðið t.d. að leika þeim bolta sem síðast var leikið af leikmanni B þá slær leikmaður A næsta högg. Skiptast leikmenn þá á höggum. Skilurðu?? Ekki?? 

1. högg --- Báðir leikmenn slá upphafshögg
2. högg --- Leikmaður A slær bolta leikmanns B og leikmaður B slær bolta leikmanns A. 

Liðið ákveður hvaða bolta skal haldið áfram með 

3. högg --- Sá leikmaður sem lék síðast með þeim bolta sem valinn er bíður og hinn leikmaðurinn leikur boltanum. 

Að því loknu skiptast leikmenn á að leika eina og sama boltanum þar til hann er kominn í holu.

Forgjöf er reiknuð með þeim hætti að notast er við 60% af vallarforgjöf þess leikmanns sem er með lægri vallarforgjöf og 40% af vallarforgjöf þess sem er með hærri vallarforgjöf. Dæmi: Leikmaður A er með 10 í forgjöf = 6 Leikmaður B er með 20 í forgjöf = 8 --- 8+6 = 14 - Leikforgjöf liðsins er þá 14. Hámarksvallarforgjöf er 24 fyrir karla og 28 fyrir konur.

Nánari upplýsingar hér: http://golf.about.com/cs/golfterms/g/bldef_chapman.htm

og hér: http://video.about.com/golf/What-Is-the-Chapman-System-.htm

Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og eru keppendur beðnir að skrá liðið saman á rástíma. Rástími verður þó aðeins til skráningar. Þátttökugjald er 3500 kr. á hvorn leikmann en þar sem um styrktarmót er að ræða þá býðst fyrirtækjum að styrkja klúbbinn og greiða 10.000 kr. fyrir lið. Þá er keppendum frjálst að greiða meira heldur en þátttökugjaldið sem rennur þá til uppbyggingar á vellinum og klúbbnum.

Verðlaun:

Glæsileg verðlaun verða í boði Símans fyrir fyrstu þrjú sætin í mótinu, en jafnframt verða veitt sérstök verðlaun fyrir lengsta teighögg karla og kvenna og nándarverðlaun á 5/14 og 8/17 braut. 

Fyrsta sætið - Bose Soundlink Mini. 
Þráðlaus og nettur hátalari með frábærum hljómgæðum sem tengist við bluetooth tæki, t.d. snjallsíma. https://vefverslun.siminn.is/vorur/gadget/tonlist/speaker/bose_soundlink_mini/
 
Meðal annarra verðlauna eru golf sólgleraugu, Titleist golfhandklæði, golflúffur, ofl.

Allir keppendur fá að auki teiggjöf fyrir mót og hamborgara að hætti hússins að móti loknu í boði Símans.

Skráning hafin á www.golf.is

Read more...

Semi vinnudagur

Þótt formlegur vinnudagur hafi verið frestað mættu nokkrir vaskir menn á svæðið. Allur gróður var snyrtur, borað var fyrir nýjum teigamerkingum og unnið var í tjarnargerð. Við þökkum þeim sem mættu í morgun sérstaklega fyrir gott framlag og þá sérstaklega Rafiðnaðarsambandinu sem lánaði okkur vél og menn til að bora fyrir teigamerkingum. Það er mikils metið.

Hér eru myndir frá deginum í dag. Svo verður formlegur vinnudagur næstu helgi ef veður lofar.

 

Read more...

Saga Dalbúa

Golfklúbburinn Dalbúi - Miðdal

Klúbburinn var stofnaður 1989. Hafði hann þá aðstöðu fyrir neðan Héraðsskólann á Laugarvatni. Fyrsti formaður klúbbsins var Gunnar G. Schram Hann var síðar gerður að heiðursfélaga í klúbbnum. Gunnar lést haustið 2004.

9. júlí 1994 tóku Dalbúar upp samstarf við Félag bókagerðarmanna og hófust handa við að byggja upp nýjan völl í Miðdal, sem er aðeins innan við Laugarvatn, en þar er völlurinn nú staðsettur. Völlurinn er 9 holur,en nægt landsvæði er fyrir 18 holu völl.

Nýr golfskáli var byggður árið 1999-2000 og árið 2003 var byggður pallur kringum húsið. Veitingasala er í skálanum ásamt aðgengi að sjónvarpi. Góð vélageymsla og vinnuaðstaða var sett upp árið 2005 sem gjörbreytti allri vélaaðstöðu klúbbsins.

Árið 2008 var gerður samningur við hjónin Guðmund H. Sigmundsson og Ransý Bender um rekstur golfvallar klúbbsins og skála. Sjá þau um allan daglegan rekstur vallarins og skálans. Sími í skála eða hjá Ransý 893-0210 og hjá Guðmundi 893-0200

Þess má geta að í Miðdal er gömul falleg kirkja sveitarinnar og þar er einnig að finna góðar sögulegar upplýsingar.

Hér má nálgast ágrip af 20 ára sögu GD ritað af Þóri Ólafssyni

Golfklúbburinn Dalbúi 
Kt. 611189-1179
Heimilisfang klúbbsins er 
Ægisíða 115 
107 Reykjavík.

 

 

Read more...

Pokamerkin í skála

pokakort2014Við viljum minna alla á að greiða árgjöldin sem fyrst en fyrir þá sem þegar eru búnir að greiða þá er hægt að nálgast kortin í skálanum hjá Ransý og Guðmundi.

Vinnudagur er áætlaður 17. maí og verður auglýstur nánar um helgina. Framundan er frábær veðurspá og því um að gera að skella sér á völlinn.

Góða golf-helgi!

Read more...

Opna Veggsportmótið 7. júní


veggsport249Fyrsta mót ársins hjá Dalbúa er ávallt opna Veggsportmótið. Leikfyrirkomulag mótsins verður punktakeppni með forgjöf með hámarksforgjöf karla 24 og hámarksforgjöf kvenna 28. 

Mótið hefst stundvíslega kl. 10:00 laugardaginn 7. júní. Mótstjórn óskar eftir því að keppendur mæti tímanlega til að greiða þátttökugjald og forðast tafir. Ræst verður út á öllum teigum. Glæsileg verðlaun í boði frá Veggsporti Vonumst til að sem flestir mæti. 

Við hvetjum alla til að mæta í þetta skemmtilega mót! Hægt er að skrá sig á www.golf.is

GLÆSILEG VERÐLAUN:

Teiggjöf til allra keppenda: Sumarkort í Veggsport.

Karlaflokkur:

1. sæti: Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur.

2. sæti: Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur.

3. sæti: Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur.

Kvennaflokkur:

1. sæti: Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur.

2. sæti: Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur.

3. sæti: Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur.

Lengsta teighögg karla:  Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport.

Lengsta teighögg kvenna:  Verðlaunagr. - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport.
Næstur holu:  Verðlaunagripur - 10.000,- kr. gjafabréf í Veggsport.

ATH: Keppendur sem vilja spila saman í holli eru beðnir um að skrá sig saman á rástíma en munið að rástíminn er einungis til skráningar og verða keppendur ræstir út á öllum holum stundvíslega klukkan 10. 

Mótsgjald er 2.800 kr.

Read more...

Opna Veggsportmótið 2015


veggsport2015 3 copy

Opna Veggsportmótið 2015

Fyrsta mót ársins hjá Dalbúa er ávallt opna Veggsportmótið. Leikfyrirkomulag mótsins verður punktakeppni með forgjöf með hámarksforgjöf karla 24 og hámarksforgjöf kvenna 28. Mótið hefst stundvíslega kl. 10:00 laugardaginn 6. júní. Mótstjórn óskar eftir því að keppendur mæti tímanlega til að greiða þátttökugjald og forðast tafir. Ræst verður út á öllum teigum. Glæsileg verðlaun í boði frá Veggsporti Vonumst til að sem flestir mæti. 

ATH: Keppendur sem vilja spila saman í holli eru beðnir um að skrá sig saman á rástíma en munið að rástíminn er einungis til skráningar og verða keppendur ræstir út á öllum holum stundvíslega klukkan 10. 

Verðlaun

Karlaflokkur:
1. Sæti: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur
2. Sæti: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur
3. Sæti: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur

Kvennaflokkur:

1. Sæti: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur
2. Sæti: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur
3. Sæti: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport - íþróttavörur

Aukaverðlaun:

Lengsta teighögg karla: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport
Lengsta teighögg karla: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport
Næstur holu á 5/14 flöt:Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport
Næstur holu á 817 flöt: Verðlaunagripur - 10.000 kr. gjafabréf í Veggsport

Verðlaun fyrir holu í höggi á 8. braut:

Glæsilegt TREK 7.2 FX reiðhjól frá erninum að verðmæti 100.000 kr.!

TEIGGJÖF TIL ALLRA KEPPENDA: Sumarkort í Veggsport

Skráning er hafin á golf.is

 

Read more...

Opna Laugarvatn Fontana-úrslit

Góð þátttaka var í mótinu og verðlaunin voru vegleg frá FONTANA. Við þökkum þeim sérstaklega vel fyrir góðan stuðning.

Úrslitin má nálgast á golf.is

Hér eru myndir frá þessum yndislega degi.

Read more...

Opna Laugarvatn Fontana 31. ágúst

fontanamot copy

Opna Laugarvatn Fontanamótið 31. ágúst

Þá er komið að einu skemmtilegasta móti sumarsins í samstarfi við einn af aðalstyrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana. Keppt verður í punktakeppni karla og kvenna með forgjöf. Hámarksforgjöf karla verður 24 og hámarksforgjöf kvenna 28.
Þá verða veitt ýmis aukaverðalun fyrir næsta upphafshögg á 5/14 og 8/17 holu, lengsta upphafshögg, ofl. 

Mótið hefst kl. 10:00 stundvíslega og verður ræst út á öllum brautum og eru keppendur beðnir um að skrá sig á netinu og mæta tímanlega á keppnisdegi. 

Read more...

Mótaskrá 2015

Dagsetning Nafn Fyrirkomulag Fjöldi hola Tegund
20. Júní MBT/Veggsport mót Punktakeppni með forgjöf 18 Almennt
27. Júní Jónsmessumót Snærisleikur 9 Almennt
4. júlí Opna Laugarvatn Fontana mótið Punktakeppni með forgjöf 18 Almennt
18.-19. júlí Meistaramót GD Höggleikur án forgjafar 36 Innanfélagsmót
8. ágúst Meistaramót FBM Höggleikur m/án forgjafar 18 Lokað mót
15. ágúst Styrktarmót Símans og GD Chapman fyrirkomulag 18 Almennt
29. ágúst Carlsbergmótið Punktakeppni 18 Almennt
12.-Sept. óstaðf. Lindarmótið Texas Scramble 18 Almennt

 

 

Nánari upplýsingar um mótalýsingu er á golf.is

Read more...
Subscribe to this RSS feed
Warning: count(): Parameter must be an array or an object that implements Countable in /var/www/virtual/dalbui.is/hradpakki/htdocs/templates/gk_university/html/com_k2/templates/default/user.php on line 131

Helstu styrktaraðilar Dalbúa

grafia logorafidnadarsambandisvm logofontana