Um Dalbúa

Super User

Super User

Vallaryfirlit

Hola123456789101112131415161718AllsCR/Slope
Gulir 289 252 434 321 145 431 332 132 288 289 252 434 321 145 431 332 132 288 5248 67.6/120
Rauðir kvenna 224 237 409 262 132 381 289 125 249 224 237 409 262 132 381 289 125 249 4616 67.6/115
Rauðir karla 224 237 409 262 132 381 289 125 249 224 237 409 262 132 381 289 125 249 4616 63.1/103
Forgjöf 5 17 3 9 13 1 11 15 7 6 18 4 10 14 2 12 16 8    
Par 4 4 5 4 3 5 4 3 4 4 4 5 4 3 5 4 3 4 72  
Read more...

Vallarfréttir

Völlurinn bætir enn við sig plús eftir lengingu þriðju brautar. Þetta segja allir sem fara um völlinn og eru afa ánægðir með þessar breytingar. 
Völlurinn er í toppstandi, vel sleginn og brautir þéttar og grænar og fallegri sem aldrei fyrr. Sama má segja um faltir sem eru mun betri en áður. 
Golfspilarar hafa ekki sparað að hrósa ástandi vallarins  sem er mikil hvatning til áframhaldandi uppbyggingar og starfs.
Nokkrar konur hafa tekið sig saman og hittast við skálann á þriðjudögum kl.10 og hvetja allar konur á svæðinu til að mæta.
 
Golfvöllurinn Dalbúi var að gerast aðili að Golfkortinu 2013 . Það þýðir að korthafa geta spilað frítt frá mánudegi til föstudags frá kl.8 til kl.15 gegn framvísun kortsins .
 
Bestu kveðjur úr skálanum,
Guðmundur og Ransý.
Síminn mínn 4.7.2013 238
Síminn mínn 4.7.2013 243
Síminn mínn 4.7.2013 245
Síminn mínn 4.7.2013 262
 
 
Read more...

Úrslit-Opna Laugarvatn Fontana 2013

 
 
Opna Laugarvatn Fontana mótið fór fram í dag og þótt að það hafi verið ansi hvasst á köflum skein sólin mest allan tímann.
Völlurinn var fallegur og allir skemmtu sér konunglega. Þökkum þeim sem tóku þátt og ekki síst stuðning FONTANA við þetta fyrsta mót sem haldið er í þeirra nafni. Hér eru svo úrslitin úr mótinu ásamt myndum (fleiri myndir eftir helgina).
Read more...

Tjarnargerð-framkvæmdir

20140609 113649

Nokkri vaskir menn mætti á annan í Hvítasunnu og byrjuðu að tyrfa í kringum tjörnina okkar góðu. Þá á meðal voru Guðmundur, Ómar, Halldór, Sveinn og Hafsteinn.

Framkvæmdum miðar vel og stefnir í að við getum sett vatnið á fljótlega.

Hér eru myndir frá framkvæmdum við tjörnina.

 

Read more...

Tjarnargerð við 9. flöt-frestun vinnudags

Eins og flestir vita hefur vatnsuppspretta við göngustíginn af 9. flöt gert okkur lífið leitt undanfarin ár á vorin. Lengi hefur verið rætt um að setja þarna tjörn til að nýta vatnið og til að fegra aðkomu að skálanum. Á mánudaginn 12. maí hófust framkvæmdir við gerð tjarnarinnar og var grafið fyrir legu hennar. Byrjað var á að grafa fyrir afrennsli út í skurðinn og svo var tjörnin mótuð. Ætlunin er að tjörnin verði á tveimur pöllum, hærri fyrir ofan stíg með afrennsli yfir grjóthleðslu í stærri tjörn við hlið flatarinnar. Einnig voru sótt tré sem Hafsteinn varaformaður gaf til vallarins.

Ekki gafst þó færi á að klára að grafa allt vegna rigninga og hefur framkvæmdum verið frestað fram yfir helgi. Ætlunin var að nota vinnudaginn til þess að ganga frá umhverfinu en vegna veðurspár höfum við ákveðið að fresta vinnudegi um eina viku eða til 24. maí. Nánar auglýst síðar.

Við ætlum þó nokkrir að mæta á laugardaginn til að bora fyrir nýjum merkingum á teigana sem lengi hefur staðið til. Við njótum velvildar Rafiðnaðarsambandsins í þeim málum sem ætlar að lána okkur vél til verksins.

Hér má sjá myndir frá framkvæmdum:

Read more...

Styrkur til GD

Golfklúbbnum var veittur rausnarlegur styrkur að upphæð 100.000 kr. frá Ó.P. prentstofu 17. ágúst á styrktarmóti GD í samstarfi við Símann.

Er styrkurinn eyrnamerktur tjarnargerð við 9. braut.

Stjórn GD þakkar Ólafi Pálssyni eiganda Ó.P. prentstofu kærlega fyrir þessa veglegu gjöf.
Ólafur Pálsson hefur um árabil komið að uppbyggingu klúbbsins, setið í stjórn, verið rekstrarstjóri o.fl.

Fyrir neðan má sjá grófa mynd af hvernig tjörnin kæmi til með að líta út :) ATH. ekki endanleg útfærsla.

olafur-palsson

Bragi Dór tekur við styrknum frá Ólafi Pálssyni fyrir hönd GD.

hola9

Tjörn við 9. braut (ekki endanleg útfærsla).

 

 

Read more...

Styrktarmót GD og Símans 2015

galax

Styrktarmót GD í samstarfi við Símann 15. ágúst - Texas scramble
Stórskemmtilegt mót með glæsilegum verðlaunum í boði Símans.

Leikform:

Texas scramble deilt með 3  Hámarksforgjöf  er 28 ( karla) og 32( kvenna). Vallarforgjöf beggja keppenda er lögð saman og deilt  í með þremur . Hún getur aldrei orðið hærri fyrir teymið en þess sem  lægri hefur vallarforgjöfina.  Ekki taka mark á forgjöfinni sem birtist við skráningu á golf.is. Hún er ekki í takt við ofangreinda reikniformúlu.

Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og eru keppendur beðnir að skrá liðið saman á rástíma. Rástími verður þó aðeins til skráningar. Þátttökugjald er 3500 kr. á hvorn leikmann en þar sem um styrktarmót er að ræða þá býðst fyrirtækjum að styrkja klúbbinn og greiða 10.000 kr. fyrir lið. Þá er keppendum frjálst að greiða meira heldur en þátttökugjaldið sem rennur þá til uppbyggingar á vellinum og klúbbnum.

hatalariheyrnartolgleraugu tifosi

Verðlaun: 

1. sæti: 2x  Bose SoundLink Colour 

2. sæti: 2x Urbanista Copenhagen heyrnatól

3. sæti: 2x  Tifosi golfgleraugu

Lengsta teighögg karla: Teitlest golfhandklæði, Teitlest boltar & golflúffur frá 66°north
Lengsta teighögg kvenna: Teitlest golfhandklæði, Teitlest boltar & golflúffur frá 66°north
Næst(ur) holu á 5.braut: Teitlest golfhandklæði, Teitlest boltar & golflúffur frá 66°north
Næst(ur) holu á 8.braut: Teitlest golfhandklæði, Teitlest boltar & golflúffur frá 66°north 

Dregið úr ÖLLUM skorkortum þátttakenda: Samsung Galaxy A3

https://vefverslun.siminn.is/vorur/simtaeki/farsimar/farsimar_4g/samsung_galaxy_a3/#pv_13059

Allir keppendur fá að auki teiggjöf fyrir mót og hamborgara að hætti hússins að móti loknu í boði Símans.

Read more...

Styrktarmót GD í samstarfi við Símann 17. ágúst

Stórskemmtilegt mót með glæsilegum verðlaunum í boði Símans. 

Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og eru keppendur beðnir að skrá liðið saman á rástíma. Rástími verður þó aðeins til skráningar. Þátttökugjald er 3500 kr. á hvorn leikmann en þar sem um styrktarmót er að ræða þá býðst fyrirtækjum að styrkja klúbbinn og greiða 10.000 kr. fyrir lið. Þá er keppendum frjálst að greiða meira heldur en þátttökugjaldið sem rennur þá til uppbyggingar á vellinum og klúbbnum. 

Verðlaun:

Siminn-trans


GALAXY-SIII-mini-Product-Image4
Glæsileg verðlaun verða í boði Símans

1.sæti: Samsung Galaxy SIII mini snjallsími

2.sæti: Zo-on golfjakkar 

3.sæti: Golfkerrulúffur frá 66°, golfhandklæði, tee og boltar (x2)

Þá verða veitt aukaverðlaun fyrir lengsta teighögg karla og kvenna og nándarverðlaun á 5/14 og 8/17 braut. 

Allir keppendur fá að auki teiggjöf fyrir mót og hamborgara að hætti hússins að móti loknu í boði Símans.
hamborgari


Leikfyrirkomulag

Leikið verður með svokölluðu Chapman fyrirkomulagi en fyrirkomulagið var fundið upp af áhugamanninum Dick Chapman. Leikið er þannig að tveir leikmenn eru saman í liði og slá þeir fyrst sínum bolta, svo bolta samherjans og svo til skiptis..... skýrt?? ekki??

Báðir leikmenn A og B slá þannig upphafshögg. Að loknu því slær leikmaður A bolta leikmanns B og öfugt. Eftir þau högg koma liðin sér saman um hvaða bolta skal leika. Velji liðið t.d. að leika þeim bolta sem síðast var leikið af leikmanni B þá slær leikmaður A næsta högg. Skiptast leikmenn þá á höggum. Skilurðu?? Ekki?? :) ---- 

1. högg --- Báðir leikmenn slá upphafshögg

2. högg --- Leikmaður A slær bolta leikmanns B og leikmaður B slær bolta leikmanns A.

Liðið ákveður hvaða bolta skal haldið áfram með

3. högg --- Sá leikmaður sem lék síðast með þeim bolta sem valinn er bíður og hinn leikmaðurinn leikur boltanum. 

Að því loknu skiptast leikmenn á að leika eina og sama boltanum þar til hann er kominn í holu.

Þetta er stórskemmtilegt fyrirkomulag og vert að prófa.

Forgjöf er reiknuð með þeim hætti að notast er við 60% af vallarforgjöf þess leikmanns sem er með lægri vallarforgjöf og 40% af vallarforgjöf þess sem er með hærri vallarforgjöf. Dæmi: Leikmaður A er með 10 í forgjöf = 6 Leikmaður B er með 20 í forgjöf = 8 --- 8+6 = 14 - Leikforgjöf liðsins er þá 14. 

Nánari upplýsingar hér: http://golf.about.com/cs/golfterms/g/bldef_chapman.htm

og hér: http://video.about.com/golf/What-Is-the-Chapman-System-.htm

heradsskolinn-laugarvatni-hviturgr

Fyrir þá sem vilja gista á Laugarvatni þessa helgina þá býðst félagsmönnum og gestum þeirra 20% afsláttur af gistingu í Héraðsskólanum Laugarvatni Hostel. Hér eru nánari upplýsingar um nýja og glæsilega þjónustu sem þar býðst www.heradsskolinn.is 

Skráning hafin á www.golf.is og í skála. Einnig er hægt að senda tölvupóst á dalbui@dalbui.is

 
 
 
 
 
 
Read more...

Styrktarmót GD í samstarfi við Símann - úrslit

gd logo-net-trans-wh  Siminn-trans

1. Bragi Dór og Sigurður Orri Hafþórssynir - 80 högg, 69 nettó.

2. Gunnar Heimir Ragnarsson og Edda Valsdóttir - 93 högg, 73 nettó.

3. Óskar Svavarsson og Anna Sigríður Erlingsdóttir - 87 högg, 74 nettó.

 

5. Hola - Jón Ævar Erlingsson - 4,57 m

8. Hola - Helgi Runólfsson - 38 cm

 

Lengstu dræv

KK.     Helgi Runólfsson 

KVK.   Þórunn Día Óskarsdóttir 

IMG_1398.jpgÓlafur PálssonIMG_1396.jpgIMG_1399.jpgIMG_1400.jpgIMG_1397.jpgIMG_1401.jpgIMG_1403.jpgIMG_1402.jpg

Read more...
Subscribe to this RSS feed
Warning: count(): Parameter must be an array or an object that implements Countable in /var/www/virtual/dalbui.is/hradpakki/htdocs/templates/gk_university/html/com_k2/templates/default/user.php on line 131

Helstu styrktaraðilar Dalbúa

grafia logorafidnadarsambandisvm logofontana