Jónsmessumót Dalbúa 21. júní 2014
- Written by Super User
- Published in Fréttir
- Read 566 times
- font size decrease font size increase font size
- Be the first to comment!

Það er komið að hinu stórskemmtilega Jónsmessumóti Dalbúa. Leikinn er snærisleikur sem er leikinn með þeim hætti að hver keppandi fær snæri í samræmi við forgjöf sína, þ.e. 0.25m af snæri fyrir hvert högg í forgjöf. Sá sem er t.d. með 20 í forgjöf fær þá 5 metra snæri. Snærið verður þá forgjöf keppanda og getur keppandi klippt af snærinu í staðinn fyrir högg. Dæmi: ef keppandi slær inn á 9. flöt í þriðja höggi og er meter frá holu þá getur hann nýtt sér snærið og sleppt því að telja næsta högg. Þá skrifar sami keppandi 3 sem skor á 9. hölu.
Klúbburinn mun skaffa snærið og jafnvel smá brjóstbirtu þegar líður á kvöldið. Keppendur eru þó beðnir um að koma með skæri, hnífa eða annað sem hægt er að nota til þess að klippa snærið. Skemmtilegt mót með skemmtilegum verðlaunum sem kynnt verða á mótinu.
Keppni hefst á öllum holum, stundvíslega klukkan 19:00 og eru keppendur beðnir um að mæta tímanlega.
ATH: Keppendur sem vilja spila saman í holli eru beðnir um að skrá sig saman á rástíma en munið að rástíminn er einungis til skráningar og verða keppendur ræstir út á öllum teigum kl. 19:00.
Skráning er hafin á golf.is - skráningargjald er 2.000 kr. og greiðist í skála.
Sjáumst hress næstu helgi!
Mótanefnd.
Warning: count(): Parameter must be an array or an object that implements Countable in /var/www/virtual/dalbui.is/hradpakki/htdocs/templates/gk_university/html/com_k2/templates/default/item.php on line 134



