Lindarmótið 2013
- Written by Super User
- Published in Fréttir
- Read 817 times
- font size decrease font size increase font size
- Be the first to comment!


Lindarmótið 14. september 2013!
Lindarmótið er síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa, en veitingahúsið Lindin á Laugarvatni stendur að mótinu með klúbbnum.
Leiknar verða 18 holur eftir Texas Scramble kerfi (2 manna) með fullri forgjöf. Reiknuð er samanlögð leikforgjöf beggja kylfinga og svo deilt í samanlagða forgjöf með 5. Sé útreiknuð forgjöf hærri en forgjöf annars hvors kylfings gildir forgjöf viðkomandi kylfings.
Á eftir ætlum við svo að hittast að venju á veitingahúsinu Lindinni á Laugarvatni kl. 18:30 og eiga góða kvöldskemmtun saman þar sem verðlaunaafhending fer fram.
Hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst.
Matseðillinn um kvöldið er girnilegur að vanda hjá Baldri á Lindinni:
- Villibráð – brot af því besta - Villibráðasmakk í boði Lindarinnar
- Bleikjuhumarsúpa með Þingvallarbleikju og heimabökuðu brauði
- Grillsteikt Lambainnralæri og grillaður humar "Surf & Turf"
- Súkkalaðifrauð Lindarinnar með hindberjasósu, vatnsmelónu og hvítri súkkalaðifroðu
Verð fyrir matinn er: 5.500 kr.
Mótsgjald er 3.500 kr.
Mæting á Lindinni um kl. 18:30
Glæsilegir vinningar í boði, meðal annars eðalvín og gjafabréf í boði Lindarinnar
Félagar og velunnarar eru hvattir til að skrá sig tímanlega í mótið á www.golf.is eða í golfskálanum í Miðdal eða með því að senda tölvupóst á dalbui@dalbui.is. Við skráningu í mótið eru keppendur beðnir að skrá sig á rástíma til að raða niður í keppnishópa (rástíminn gildir þó ekki). ATH: Mótið hefst kl. 11:00. Keppendur skulu vera mættir kl. 10:15, og ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 11:00.
Minnum á að mæting á lokahóf klúbbsins á Lindinni er kl. 18:30 (breyttur tími frá áður auglýstum tíma)
Nú þegar eru margir búnir að skrá sig og virðist stefna í afar skemmtilegt haustmót.
Sjáumst hress um helgina.
Mótanefnd
Warning: count(): Parameter must be an array or an object that implements Countable in /var/www/virtual/dalbui.is/hradpakki/htdocs/templates/gk_university/html/com_k2/templates/default/item.php on line 134