Leikið til forgjafar erlendis
- Written by Super User
- Published in Fréttir
- Read 859 times
- font size decrease font size increase font size
- Be the first to comment!
Leikið til forgjafar erlendis
Þegar veturinn virðist aðeins vera að láta undan hugsa margir kylfingar til þess að komast út á golfvöllinn, liðka sig og hefja hringrás sumarsins.
Það er ljóst að fjölmargir, þar á meðal félagar í golfklúbbi Dalbúa, taka forskot á sælu sumarsins með því að fara í golfferðir erlendis, einkum í mars og apríl, og leika þá við bestu aðstæður í aðdraganda sumarsins sem í vændum er á Íslandi.
Til þess að golfhringir sem leiknir eru erlendis verði reiknaðir til forgjafar þarf viðkomandi félagsmaður að skila umræddum skorkortum, undirrituðum af honum sjálfum/henni sjálfri og ritara, til formanns forgjafanefndar Dalbúa, Eirík Þorláksson eftir heimkomuna.
- Þá mun forgjafarnefnd klúbbsins staðfesta hringinn og reiknast hann þá til forgjafar.
Hægt er að kynna sér forgjafarkerfi EGA í heild sinni undir www.golf.is/forgjof
Ef spurningar vakna um forgjafarkerfið þá er kylfingum velkomið að senda töluvpóst á info@golf.is. Þeir hjá Golfsambandinu leitast við að svara öllum spurningum hið fyrsta.
Ef einhverjar spurningar koma hins vegar upp varðandi leiðréttingar á skori, forgjöf og/eða innsláttarvillum ber að senda slíkar spurningar á forgjafarnefnd Dalbúa, sem annast forgjafarstjórn allra félagsmanna, þ.e. þeirra sem eru með aðalskráningu sína hjá Dalbúa.
Þeim sem eru á leið í golfferðir í vor er hér með óskað góðrar ferðar, en síðan förum við að hittast á golfvellinum í Miðdal þegar fer að vora fyrir fullt og allt eftir harðan vetur !
Páll Ólafsson, formaður.
Warning: count(): Parameter must be an array or an object that implements Countable in /var/www/virtual/dalbui.is/hradpakki/htdocs/templates/gk_university/html/com_k2/templates/default/item.php on line 134